Íslendingafélagið í Melbourne

Sem ég skrifa þetta þá er það víst svo að það er ekkert Íslendingafélag í Melbourne. Með því hinsvegar að skrifa þetta þá er ég að vonast til að Google taki upp fyrirsögnina og beini öðrum sem eru að leita að sama hlut til mín og við getum þá komið einu slíku af stað. Vanalega þegar ég ferðast eða bý erlendis þá er ég ekki mikið fyrir að umgangast íslendinga. Ég kýs heldur að kynnast heimafólki og taka upp samband við mitt heimafólk þegar ég kem aftur heim. Nú er því hinsvegar svo farið að ég veit ekki hvenær ég kemst heim aftur til að búa þar. Konan mín er Áströlsk og eftir að hafa búið með mér á Íslandi í 3 ár fannst henni nóg komið og vildi koma hingað aftur. Hvað gat maður sagt annað en: “OK” … eða “OK bubba” eins og það var víst í fullri lengd. Þessi óvissa um heimahagana gerir það að verkum að nú dauðlangar mig að hitta aðra Íslendinga hérna í útlandinu og halda smá sambandi við skerið. Sérstaklega langar mig að hóa saman fólki og halda þorrablót og skötuveislur og ískenskt fyllerí og syngja “ríðum ríðum” og allt það sem íslendingar gera bara þegar þeir eru langt í burtu og sakna heimahaganna. Ef þú ert að hugsa eitthvað svipað, vertu þá endilega í bandi með því að skrifa í comment, ég fæ póst þegar eitthvað nýtt kemur svo það skiptir ekki þó pósturinn sé gamall, eða farðu á about síðuna og þar eru ítarlegar upplýsingar. Ísland er land þitt!! hehe

1 Comment

  1. Ásdís Guðmundsdóttir
    Posted November 6, 2008 at 12:50 pm | Permalink

    Góðan dag,

    Var að gúggla og datt í hug að senda línu. Þannig eru mál með vexti að nú í kreppu er ég að hugsa mér til hreyfings og fara annaðhvort í heimsreisu og/eða hafa´skipti á íbúð til lengri eða skemri tíma. Kannski þú vitir af einhverjum þarna sem er til í íbúðaskipti? Þá væri ég meira en til ´´i þorrablót og íslensk fyllerí :o )

    kv. Ásdís

Post a Comment

Your email is never published nor shared.