Hollenskar pönnukökur

dsc_6712-edit-1.jpg

Já, ég komst að því hérna úti að Hollendingar búa ekki til Íslenskar pönnukökur, þeir búa til Hollenskar pönnukökur, og þær eru allt öðruvísi en okkar pönnukökur. Í gær varð ég mér úti um pönnu til að gera þessar pönnukökur og prófaði að gera þær sjálfur í fyrsta sinn. Þær eru ekki sætar en í staðin þá geturðu valið um að hella yfir sætindum, eins og á þessari mynd, eða setja ost og annað meðlæti sem er meira eins og máltíð. Allavega, þá mæli ég með þessum pönnukökum, þó ekkert komi náttla í stað þeirra Íslensku. Upphafið að þessu var reyndar að ég ákvað loksins að kaupa almennilega pönnukökupönnu að Íslenskum sið, eftir að hafa notast við matar pönnuna í mörg ár. Úti í hinum stóra heimi heita þær þó ekki pönnukökupönnur, útlendingar standa víst í þeirri meiningu að pönnukökur séu Franskar að uppruna og kalla þær Crepes. Ég fann þó Danska Crepes pönnu sem mér leist vel á og fyrst það hafa að öllum líkindum verið Danir sem komu með þennan sið heim til Íslands þá verður það að duga fyrst enginn selur alvöru Íslenskar pönnukökupönnur hér hinumegin á hnettinum. Scanpan Ceramic Titanium Classic Crepes Pan verður að duga fyrst Alpan Icelandic Classic Pancake Pan er ekki til.

Post a Comment

Your email is never published nor shared.