
Ég hef tekið eftir því að það eru íslenskir gestir að koma á síðuna frá Google eftir að hafa slegið inn “að búa í Melbourne” og fundið gamla færslu sem ég skrifaði um Íslendinga í Melbourne. Það er því við hæfi að ég taki saman ærlega færslu á íslensku um það hvernig það er að búa í þessari borg. Við fluttum hingað því konan mín er Áströlsk og vildi komast heim aftur. Ég valdi þessa borg vegna þess að Melbourne er eini staðurinn sem ég hef komið til í Ástralíu sem hefur Evrópskan blæ.
Ástralinn
Fyrst ber að geta þess að Ástralinn er svoltítið öðruvísi en Íslendingurinn. Svo maður leyfi sér að alhæfa svolítið þá má segja að Ástralinn sé opinn, einlægur og kunni að lifa lífinu, en á sama tíma harður, grunnur og stéttskiptur. Ástralir elska allar tegundir íþrótta, mannamót utandyra (td. ‘barbie on the beach’), bjór og léttvín, ódýrt drasl og umfram allt landið sitt. Þeir eru latir að tala ensku og slanguryrði eru mjög algeng en eru þó ekki óskýrir í máli. Ef þetta hljómar eins og fólk sem þú myndir vilja umgangast þá lestu áfram.
Ástralía
‘Lítilla sanda, lítilla sæva, lítil eru geð guma’ (1). Landið mótar manninn og Ástralía hefur sjáanlega mótað menningu og hugarfar Ástrala. Landið er að sumu leiti svipað Íslandi. Fólksfjöldi á hvern ferkílómeter er sá sami, hæsta fjallið er svipað hátt og stærstu byggðirnar eru nálægt sjó. Það sem hinsvegar skilur að er að Ástralía er heitt land og mjög gamalt, það er lítið vatn hérna og vegalengdirnar á milli staða eru stjarnfræðilegar fyrir venjulegan Íslending. Ekki vanmeta vegalendirnar ef þú ert að plana ferð hingað. Ástralir eru ‘reddarar’ eins og íslendingar, hafa ‘ég get gert þetta’ hugarfar og geta verið helvíti harðir þegar á reynir án þess að þykja það neitt tiltökumál. Þeir eru einnig upp til hópa hjálpsamir. Á móti kemur þó að í Ástralíu er óvenju hátt hlutfall af fávitum (þó ekki eins hátt og í ameríku) og ber há glæpatíðni því augljóst vitni. Ein ástæða þess að ég valdi að búa í Melbourne er að hér er fávitahlutfallið að mínu mati lægra en í flestum öðrum hlutum landsins. Að minnstakosti í mínu úthverfi sem er Elwood.
Melbourne
Á gullaldarárunum var Melbourne líkt við París og skal mig ekki undra. Hér er mikið af fallegum byggingum frá því um og eftir aldarmótin 1900. Allt umhverfis Melbourne var að finna gull þegar byggð var að myndast hér og því byggðist borgin upp sem gullgrafarabær (2). Reyndar átti Melbourne aldrei að verða stórborg heldur var öðrum úthverfum upphaflega ætlað það hlutverk, s.s. Williamstown og Maryborough. Melbourne er rólegri en Sydney og mun menningalegri. Hér er mikið af söfnum og menningarviðburðum, mun meira en annarstaðar í Ástralíu. Flestir stærstu íþróttaviðburðir landsins fara fram hérna og eru margir þeirra heimsfrægir (3). Þeirra á meðal eru Australian Open tennismótið og Formúla 1 kappaksturinn. Aðrir stórir íþrótta viðburðir sem minni athygli fá á Íslandi eru Melbourne Cup veðreiðarnar, Australian Football League (aussie rules) fótboltamótið og Melbourne Boxing Day Test krikketmótið.
Strendurnar hér þykja ekki spennandi á Ástralaskan mælikvarða. Reyndar má segja að Melbourne hafi orð á sér fyrir óáhugaverðar strendur. Þetta er þó ofsögum sagt og fyrir meðal Íslending þá eru strendurnar hérna mjög fallegar. Ástæður þessa orðróms eru tvær. Annarsvegar þá voru strendurnar hér óhreinar í gamladaga og þeim lítt haldið við. Þetta hefur hinsvegar breyst og nú er mikið líf á ströndunum á heitum dögum. Seinni ástæðan er sú að Ástralir vilja hafa svoltinn kraft í sjónum þar sem þeir baða sig þannig að hægt sé að sörfa og leika sér í öldunum. Vegna legu Melbourne inni í Port Phillip Bay á eru öldurnar nánast alltaf litlar og sjórinn frekar flatur. Þetta þykir þeim miður en persónulega þykir mér það þægilegt.
Melbourne er eins og Reykjavík að því leiti að það vilja allir búa í einbýlishúsum. Borgin er því mjög þanin út um allar trissur og langt að fara frá einum enda til annars. Miðborgin var mjög óspennandi staður fyrir um 15 árum síðan en það hefur breyst. Borgarráðið fékk Danskan skipulagshönnuð (4) til að gera drög að nýju skipulagi miðborgarinnar og hefur því verið hrint í framkvæmd. Í dag er miðborgin mjög lifandi staður með miklu mannlífi. Fólksþróunin er því í átt að miðborginni og innri úthverfunum þessa dagana og allar líkur til að sú þróun haldi áfram. Þetta hefur hinsvegar í för með sér að því nær bænum sem þú býrð því dýrara er húsnæðið. Ég mæli því með að þú skoðir að búa smátt og miðsvæðis frekar en rúmt og úti í rassgati.
Veðurfarið í Melbourne er eitthvað sem Ástralir gera almennt grín að. Þeir segja að í Melbourne þá geturðu fengið fjórar árstíðar á einum degi. Veðrið hér er mjög óstöðugt miðað við flesta aðra staði í Ástralíu og persónulega þykir mér það kostur, það minnir mig á Ísland. Hitinn á sumrin rokkar á milli 20 og 40 gráða en á veturna frá kanski 8-15. Ef gott veðurfar skiptir þig miklu máli þá mæla flestir með Perth. Þar er veðrið stöðugt, lítið sem kemur á óvart og alltaf heitt. Margir flytja einnig til Queensland fylkisins til að komast í gott veðurfar. Brisbane og the Gold Cost í suður QLD eru álitlegir kostir með tilliti til veðurfars en norðar verða sumrin mjög heit. Sydney hefur líka betra veðurfar en Melbourne. Persónulega þá leiðist mér stöðug sól og lognmolla en það eru ekki allir sem deila þeirri skoðun.
Á heildina litið þá er ég ánægður með Melbourne.
(1) Hávamál
(2) Golden Mile heritage trail
(3) Melbourne sport events
(4) Urban Realm Enhancement, Gehl Architects